Poomsae dómaranámskeið og þjálfun

By:

Dómaranefnd TKÍ mun halda dómaranámskeið og þjálfun helgina 28-29 september í Víkurhvarfi 1. Þeir sem eru með svart belti og orðnir 17 ára og standast námskeiðið munu fá “PP (Provisional) National Referee“ réttindi. Lágmarks kröfur til að sitja námskeiðið er að einstaklingurinn sé að minnsta kosti 16 ára og með rautt belti (4. Geup). Kennari verður meðal annars alþjóðlegur dómari Master Rahel Azad (7º Dan). Skráning sendist á domaranefnd@tki.is