Íslandsmót 2019

By:

Íslandsmót Taekwondosambands Íslands munu fara fram helgina 19.-20. okt 2019. Á laugardeginum 19. okt er keppt í poomsae og fer mótið fram í húsnæði Ármanns niðri í Laugardal. Á sunnudeginum 20. okt er svo Íslandsmót í kyorugi og fer það fram í Aftureldingu Mosfellsbæ. Boðsbréf fyrir bæði mótin verða svo send út þegar nær dregur mótunum. TKÍ vill svo minna á að dagskrá sambandsins fyrir veturinn 2019-2020  er aðgengileg bæði á heimasíðu og facebooksíðu sambandsins.