Mótanefnd
Starfsreglur mótanefndar
1.gr. Skipun
Mótanefnd starfar samkvæmt lögum TKÍ. Mótanefnd skal vera skipaðuð a.m.k. þremur aðilum, einum úr stjórn TKÍ, og a.m.k. tveimur sem aðildarfélög TKÍ tilnefna til tveggja ára.
2.gr. Fundir
Nefndin skal koma saman þegar þurfa þykir. Nefndarformaður boðar til funda og stýrir þeim. Í lok árs skilar mótanefnd skýrslu um starf sitt til stjórnar TKÍ.
3.gr. Hlutverk og verkefni
Mótanefnd starfar náið með stjórn TKÍ. Nefndin annast undirbúning og umsjón með mótum á vegum sambandsins.
Hlutverk:
- Skipuleggja dagskrá og staðsetningu móta
- Skipuleggja mönnun stöðugilda á móti
- Útfæra boðsbréf á mót og reglur sem gilda á mótinu
4.gr. önnur störf
Mótanefnd skal annast önnur störf sem stjórn TKÍ kann að fela henni á hverjum tíma.
5.gr. Ágreiningsmál
Stjórn TKÍ sker úr öllum ágreingsatriðum sem kunna að rísa út frá reglum þessum.
6.gr. Gildistaka
Starfsreglur þessar taka þegar gildi.
Samþykkt af stjórn TKÍ 1. september 2020.