Landsliðsnefndir
Starfsreglur landsliðsnefnda í sparring og poomsae
1.gr. Skipun
Landsliðsnefndir starfa samkvæmt lögum TKÍ. Landsliðsnefndir skulu vera skipaðar a.m.k. þremur aðilum, einum úr stjórn TKÍ, og a.m.k. tveimur sem aðildarfélög TKÍ tilnefna til tveggja ára.
2.gr. Fundir
Nefndirnar skulu koma saman þegar þurfa þykir. Nefndarformaður boðar til funda og stýrir þeim. Í lok árs skila nefndirnar skýrslu um starf sitt til stjórnar TKÍ.
3.gr. Hlutverk og verkefni
Landsliðsnefndir þurfa að starfa náið með landsliðsþjálfara. Nefndirnar hafa umsjón með þátttöku landsliðsins í alþjóðakeppnum, skipuleggja undirbúning þeirra og annast samskipti.
Hlutverk:
- Annast undirbúning fyrir æfingar og skipulagningu í samvinnu við landsliðsþjálfara
- Finna dagsetningar fyrir æfingar
- Fá aðstöðu fyrir æfingar
- Sjá um samskipti á milli landsliðsþjálfara og landsliðsfólks
- Vera í forsvari fyrir landsliðið í verkefnum
- Sjá um viðburði fyrir landsliðið
4.gr. önnur störf
Landsliðsnefndir skulu annast önnur störf sem stjórn TKÍ kann að fela þeim á hverjum tíma.
5.gr. Ágreiningsmál
Stjórn TKÍ sker úr öllum ágreingsatriðum sem kunna að rísa út frá reglum þessum.
6.gr. Gildistaka
Starfsreglur þessar taka þegar gildi.
Samþykkt af stjórn TKÍ 1. september 2020.