Dómarnámskeið með Chakir Chelbat yfirdómara WTF
TKÍ stendur fyrir Dómaranámskeiði dagana fyrir Íslandsmeistaramótið.
Chakir Chelbat yfirdómari WTF mun halda námskeiðið en hann er jafnframt yfirdómari Íslandsmeistarmótsins í ár.
Dagskrá námskeiðsins er svohljóðandi:
Föstudagur, 23 mars:
kl: 16:30 til 19:30,
Fyrirlestur og bóklegt, í fundarsal ÍSÍ við Engjaveg 6
Laugardag, 24 mars:
kl 12:00 til 18:00
Verklegar æfingar og fyrirlestur í taekwondosal Ármanns.
Skyldumæting fyrir landsliðsfólk, keppendur, yfirþjálfara allra félaga og alla dómara á Íslandi sem hafa dómararéttindi.
Hægt verður að fá C réttindi (hornadómara réttindi) og hugsanlegt að B réttindi verði veitt bardagastjórum eftir Íslandsmeistaramótið á sunnudag.
Stjórn TKÍ hvetur alla áhugasama iðkendur til að mæta og uppfæra þekkingu sína á reglum WTF því mikið hefur breyst á undanförnum árum og er enn í mótun.
Verð er 2.000,- kr á mann fyrir námskeiðið.
Skráning fer fram á tki@tki.is
Stjórn TKÍ.