TKÍ bikarmótið – Upplýsingar
Fyrsta TKÍ Bikarmótið fyrir veturinn 2011/2012
Á laugardeginum 19 nóvember verður keppt í cadet flokki, (Sjá nánar hópaskiptingu:cadetHoparBikarmot12011). Laugardagsmótið verður haldið í sal Aftureldingar í íþróttamiðstöðinni við Lágarfellslaug, Mosfellsbæ (sjá nánar kort: Staðsetning), Mótið hefst kl 9.00. Á laugardgi er keppt á tvemur gólfum (einu Poomsae og einu sparring). Keppt verður í cadet á laugardeginum og minior,junior, senior og superior á sunnudeginum þá verður mótið í sal Aftureldingar íþróttamiðstöðinni við varmá .
Á laugardag hefur verður leitast við að skipta hópunum í 4 manna hópa sem keppa í sparring en í poomsae keppa tveir hópar saman (8 iðkendur) . Í cadet flokki verða loturnar tvær og gullstig ef jafnt er. loturnar eru 2 x 1.5 mín og það verður ekki keppt um 3 til 4 sætið.
Á sunnudeginum verður leitast við að fara eftir reglum WTF í flokka skiptingu og mótsfyrirkomulagi, svo framalega sem það er hægt, bæði í sparring og poomsae.
Skráningafrestur er á miðnætti Þriðjudaginn 15. nóvember. Senda skal skráningu á netfangið tki@tki.is
Til að ná góðu flæði í mótið og geta haldið tímamörk, þá er mjög mikilvægt að öll félög skrái iðkendur sýna á þar til gert skráningarform (bætið inn línum eftir þörfum). Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: Nafni iðkenda, kennitala, (aldur), beltagráða, hæð og þyngd. Einnig þarf að koma fram hvort viðkomandi ætlar að keppa í bæði poomsae og sparring eða bara í annari greininni. Allir keppendur 12 ára og eldri þurfa að hafa keppnisleyfi frá TKÍ (afhendist á mótsdag ef allar skráningar eru réttar og viðkomandi félag er skuldlaust við TKÍ og Felix rétt uppfærður).
Ýtarlegri lýsing á mótsfyrirkomulagi: TKÍ Bikarmót 1 af 3 2011 og tkiBikarmót
Þáttökugjöld á barnamótinu á laugardag eru 1500 kr og fyrir fullorðna á sunnudag er gjaldið 2500 kr
Greiða skal þátttökugjöldin inn Bankareikning 0114-15-380690 KT:120666-5179
Fyrir miðnætti Miðvikudaginn 16 nóvember.
Skráningarform: skraning1TkiBikarmot
9.-5. kup: 1. Umferð: frjálst val um form frá (1) il jang – (7) Chil jang 2. Umferð: frjálst val um form frá (1) il jang – (7) Chil jang
4.-.1. kup: 1. Umferð: (6) Yook jang 2. Umferð: (4) Sah Jang
1. dan+: 1. Umferð: (8) Pal jang 2. Umerð: (10) Keumgang