Leo með Silfur á Bosnia Open G-1
Nýliðna helgi fóru Leo Anthony Speight og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir til Bosníu ásamt Richard Fairhurst landsliðsþjálfara til að keppa á tveimur fyrna sterkum alþjóðlegum stigamótum sem gilda til stiga á heims- og Ólympíulistum World Tekwondo.

Á laugardag var komið að fyrra móti ferðarinnar European Club Championship G-1. Yfir 1000 keppendur voru skráðir til leiks. Bæði Ingibjörg og Leo sátu hjá í fyrstu umferð sökum stöðu á heimslistanum. Ingibjörg byrjaði svo keppnina í 16 manna úrslitum í 26 manna flokki -62 . Hún byrjar á að sigra keppanda frá Tyrklandi og var því komin áfram í 8 manna úrslit. Þar mætti hún fyrna sterkum keppanda frá Rússlandi. Rússinn vann viðureignina og klárið svo daginn með gull. Ingibjörg endaði því í 5. Sæti á mótinu.
Leo byrjaði daginn í 32 manna úrslitum í 40 manna flokki -68 þar vann hann Tyrkja örugglega í bardaga 1. Í 16 mann úrslitum mætti hann Rússa eins og Ingibjörg og það fór á sama veg. Leo tapaði viðureigninni og Rússinn fór alla leið og vann gull. Leo endaði því daginn í 9. Sæti. Ekki slæmt á móti tvö eftir erfið meiðsl.
Núna á mánudag var svo komið að móti tvö eða Bosnia Open sem einnig er G-1 stiga mót. Rúmlega 1000 keppendur voru skráðir til leiks þar á meðal Olympíufarar og fólk efst á heimslistum.
Ingibjörg sat einnig hjá í fyrstu umferð og hóf því keppni í 16 manna úrslitum. Þar mætti hún enn einum sterkum Rússanum. Bardaginn var í járnum allan tíman og hefði getað dottið hvoru megin sem er. Ingibjörg átti ótrúlega flottan bardaga þó svo að hún hafi þurft að játa sig sigraða annað mótið í röð gegn Rússa sem fór alla leið í úrslita bardagann og endaði með silfur. Ingibjörg endaði því í 9. Sæti.
Næst var komið að Leo í -68 flokki. Hann sat hjá í fyrstu umferð og byrjaði bardaga 1 í 16. Manna úrslitum eins og Ingibjörg. Þar mætti hann enn einum Rússanum en í þetta skiptið vann Leo hann örugglega og var kominn áfram í 8. Manna úrslit. Þar mætti hann miðameríkumeistara frá Panama. Leo gerði sér lítið fyrir og stjórnaði bardaganum allan tímann og landaði öruggum sigri og tryggði sig inn í undanúrslit. Næst var komið að keppanda frá Þýskalandi. Sá dró sig úr keppni vegna meiðsla og sigraði því Leo og tryggði sér sæti í úrslitum mótsins. Í úrslitum mætti Leo svo fyrnasterkum keppanda frá Serbíu og því miður að játa sig sigraðan 0-2 . Leo endar því daginn með silfur sem er magnað eftir að hafa verið frá í 7 mánuði eftir þrálát hnémeiðsli og þetta aðeins hans 3. mót síðan hann kom til baka í byrjun Júní.
Allt landsliðið hefur verið að gera frábæra hluti undanfarið undir stjórn Richard Fairhurst landsliðsþjálfara og því eru spennandi tímar frammundan. Næsta mót hjá landsliðinu verður svo Portugal Open í lok Júlí .
