23. Ársþing TKÍ 15. apríl 2026 – síðara fundarboð
Ársþing TKÍ árið 2026 verður haldið þann 15. apríl kl. 18.00 í fundarsal B og C í höfuðstöðvum ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.
Dagskrá þingsins verður skv. lögum og sem hér segir:
1. Þingsetning.
2. Kosning 1. og 2. þingforseta.
3. Kosning 1. og 2. þingritara.
4. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.
5. Ávörp gesta
6. Álit kjörbréfanefndar.
7. Skýrsla stjórnar lögð fram.
8. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
10. Kosning þingnefnda.
11. Þingnefndir starfa.
12. Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
13. Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðkendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.
14. Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.
15. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.
16. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir.
17. Kosningar:
a) formaður og tveir aðilar kosnir í aðalstjórn ásamt þremur aðilum í varastjórn, sbr. 10.grein laga TKÍ
b) 1 skoðunarmaður reikninga til tveggja ára í senn.
c) nefndir og fulltrúar sem starfa milli taekwondoþinga.
d) fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.
18. Þingslit.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn TKÍ
