FLÓKI Á GRAND PRIX

By:

Guðmundur Flóki Sigurjónsson er búinn að tryggja sér keppnisrétt á fyrsta Grand Prix ársins.

Eftir frábært gengi undanfarið hefur Flóki tryggt sér keppnisrétt í -80 flokki á Grand Prix í bardaga sem haldið er í Róm í Júní. Flóki er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur sér inn sæti á Grand Prix fyrir Ísland og annar Íslendingurinn til að keppa á Grand Prix  frá upphafi. Grand Prix er sterkasta mótaröð í heimi og einungis topp 32. í hverjum ólympískum flokki sem vinna sér inn þátttökurétt. Við erum einstaklega stolt af þeim árangri sem landslið Íslands í bardaga hefur náð á undanförnum árum fyrst undir stjórn Gunnar Bratli og svo síðasta árið undir stjórn Richard Fairhurst . Við óskum Guðmundi Flóka og Rich til hamingju með stórkostlegan árangur og hlökkum til með að styðja við og fylgjast með landsliðinu okkar sem stefnir ótrautt áfram að þáttöku á Ólympíuleikunum 2028. Áfram Ísland