Leo á styrk hjá Ólympíusamhjálpinni

By:

Í gær voru undirritaðir samningar vegna einstaklingsstyrkja frá Ólympíusamhjálpinni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. Við erum ótrúlega stolt að einn af þeim sem fá styrkinn að þessu sinni er Taekwondo og landsliðsmaðurinn okkar í bardaga Leo Anthony Speight.

Um að ræða mánaðarlegan styrk fyrir hvern styrkþega vegna kostnaðar sem til fellur vegna æfinga og keppni. Leo fær 900 dollara á mánuði í styrk. Styrktímabil hófst þann 1. september 2025 og stendur fram að Ólympíuleikunm í Los Angeles 2028, nái Leo að tryggja sér þátttökurétt.

Við óskum Leo innilega til hamingju með viðurkenninguna og styrkinn.

Ljósmyndir/Hlín Guðmundsdóttir

Nánar er hægt að lesa um þetta á heimasíðu ÍSÍ

https://isi.is/frettir/frett/2025/09/23/Olympiusamhjalpin-styrkir-ithrottafolk-vegna-undirbunings-fyrir-Los-Angeles-2028