Vegna móta TKÍ í bardaga
Stjórn TKÍ hefur samþykkt eftirfarandi kröfur um þjálfara á mótum sambandsins fyrir Cadet og eldri að beiðni dómarnefndar í bardaga. Þjálfari sem ætlar að þjálfa (coacha) á mótum sambandsins í bardaga skal hafa farið á Coach námskeið TKÍ eða vera með alþjóðleg coach réttindi. Þjálfarinn skal vera 18 ára og eldri eða með svart belti. Þjálfari að coacha skal ekki klæðast dobok. Skyldumæting er fyrir alla þjálfara á þjálfarafund sem yfirdómari heldur 15 min fyrir mót.
Fyrsta þjálfara (coach) námskeið TKÍ verður haldið 14. nóv. Malsor Tafa IR yfirdómari TKÍ mun halda námskeiðið. Hægt verður að taka þátt á námskeiðinu með fjarfundarbúnað.