Taekwondofólk ársins 2018

By:

Taekwondomaður ársins er Ágúst Kristinn Eðvarðsson frá Keflavík

Ágúst Kristinn er einn allra besti taekwondomaður landsins. Ágúst er t.a.m. einiÍslendingurinn til að ná verðlaunum á Evrópumóti í Ólympísku taekwondo. Ágúster fastamaður í íslenska landsliðinu og hefur náð eftirtektarverðum árangri ámótum á erlendri grundu þrátt fyrir ungan aldur.  Hann keppti m.a. áúrtökumóti fyrir Ólympíuleika æskunnar sem haldið var í Túnis vor og stóð sigþar með mikilli prýði.

Ágúst Kristinn ásamt landsliðsþjálfara Íslands í bardaga Chago Rodriguez Segura

Ágúst keppti á mörgum erlendum mótum á árinu. Meðal þeirra var Opna hollenska mótið; stærsta, árlega stigamótið sem haldið er í Evrópu þar sem hann féllúr keppni í fjórðungsúrslitum með minnsta mögulega mun á síðustu sekúndum bardagans, á móti mjög sterkum sænskum andstæðingi.

Ágúst hefur fengið gull og silfurverðlaun á gríðarlega sterkum erlendum stigamótum (mótum sem telja til stigasöfnunar inn á heimslista og þátttökurétts í Ólympíuleikum) unnið á þremur Norðurlandamótum og er margfaldur Íslandsmeistari. Hann er eitt mesta efni Íslands í taekwondo og hefur náð afskaplega góðum árangri í gegnum tíðina og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í íþróttinni. Hann vekur einnig athygli hvar sem hann kemur erlendis þar sem hann sýnir afar góða tækni og keppnisanda.

Ágúst er ennfremur sérlega sterk fyrirmynd fyrir taekwondofólk á öllum aldri og af öllum getustigum.  Hann er óþreytandi í að miðla af þekkingu sinni og reynslu, er ávallt boðinn og búinn að aðstoða þar sem þörf er á og kemur fram við alla af stakri hógværð, kurteisi og virðingu.  Í huga stjórnar TKÍ er Ágúst Kristinn ekki bara einn okkar allra bestu keppenda, heldur er hann einnig fulltrúi allra þeirra góðu gilda sem einkenna íþróttina og hugsjónina sem hún stendur fyrir.

Taekwondokona ársins er María Guðrún Sveinbjörnsdóttir frá Aftureldingu

María Guðrún.
Ljósmynd Tryggvi Rúnarsson

María Guðrún er fremsta taekwondokona ársins, og var fulltrúi TKÍ í vali á íþróttamanni ársins árið 2017.  Fyrir utan að vera máttarstólpi í landsliðsstarfinu, þar sem hún sannkallaður leiðtogi í landsliði Íslands í poomsae, sér hún um poomsae þjálfun hjá fjölmörgum félögum og hefur þar stóreflt þjálfunina með fagmennsku sinni og einstöku viðmóti.  María Guðrún hefur keppt á mörgum mótum í ár fyrir Íslands hönd, og bar þar hæst keppni á heimsmeistaramótinu í Taiwan í nóvember þar sem hún lenti í 9.-16. sæti í erfiðum flokki.  María Guðrún keppti á Opna Enska mótinu sl. vor og vann þar til gullverðlauna bæði í bardaga og í poomsae.  Hún vann til brons- og silfurverðlaun á NM í Finnlandi síðasta vetur.  María Guðrún er Íslandsmeistari í poomsae auk þess að vera margfaldur bikarmeistari í bæði poomsae og bardaga.

Það eru fáir aðilar á Íslandi í taekwondo sem komast með tærnar þar sem María Guðrún hefur hælana og fyrir utan að vera yfirburða keppnismanneskja þá tekur hún mjög virkan þátt í öllu starfi síns félags og TKÍ, og leggur þannig einstaklega mikið til uppbyggingar á íþróttinni á Íslandi.