Dómarnefnd

Starfsreglur dómaranefnda í sparring og poomsae

1.gr. Skipun

Dómaranefndir starfa samkvæmt lögum TKÍ. Dómaranefndir skulu vera skipaðar a.m.k. þremur aðilum, einum úr stjórn TKÍ, og a.m.k. tveimur sem aðildarfélög TKÍ tilnefna til tveggja ára.

2.gr. Fundir

Nefndirnar skulu koma saman þegar þurfa þykir. Nefndarformaður boðar til funda og stýrir þeim. Í lok árs skila nefndirnar skýrslu um starf sitt til stjórnar TKÍ.

3.gr. Hlutverk og verkefni

Dómaranefndir þurfa að starfa náið með stjórn TKÍ. Nefndirnar hafa umsjón með skjalfestingu keppnisreglna og annast skipulagningu dómaranámskeiða og mönnun á dómgæslu á mótum.

Hlutverk:

  • Skipuleggja þjálfun og menntun dómara í sparring og poosmae
  • Skjalfestingu á gildandi keppnisreglum í sparring og poomsae
  • Tryggja að dómgæsla á mótum sé ávallt með eins góðum hætti og við verður komið

4.gr. önnur störf

Dómaranefndir skulu annast önnur störf sem stjórn TKÍ kann að fela þeim á hverjum tíma.

5.gr. Ágreiningsmál

Stjórn TKÍ sker úr öllum ágreingsatriðum sem kunna að rísa út frá reglum þessum.

6.gr. Gildistaka

Starfsreglur þessar taka þegar gildi.

Samþykkt af stjórn TKÍ 1. september  2020.