Íþróttafólk ársins 2021

By:

Taekwondosamband Íslands TKÍ hefur valið íþróttafólk ársins 2021. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar mikið til að fylgjast með þessu frábæra fólki í framtíðinni.

Leo Anthony Speight

Leo Anthony Speight hefur um árabil verið okkar öflugasti bardagamaður. Hann keppir í -68 senior sem er einn erfiðasti flokkur sem hægt er að keppa í. Leo hefur unnið allt sem hægt er að vinna á Íslandi og er margfaldur Íslandsmeistari og Norðurlandameistari. Hann hefur einnig unnið til margra verðlauna á alþjóðlegum mótum. Leo er ótrúlega flott fyrirmynd bæði þegar kemur að aga við æfingar og Íþróttamannslega hegðun, hann er til fyrirmyndar á öllum sviðum.

Árið 2021 hefur verið viðburðaríkt hjá Leo Anthony Speight eftir að keppnir byrjuðu aftur erlendis. Hann hefur sótt fjölda móta og æfinga erlendis og bætingin verið heilmikil. Leo hefur verið að keppa á G-mótum sem eru sterkustu alþjóðlegu mótin og núna í haust fór hann á 5 mót. Það hefur verið mikill stígandi í árangri og nú undir lok ársins komst hann á pall á Breska meistaramótinu í geysi öflugum -68 senior flokki. Við hlökkum til með að fylgjast með áframhaldinu.
Afrek á árinu :
Brons Breska meistarmótið 1 Senior A  -68kg í bardaga
17. sæti á opna Franska Senior A  -68kg í bardaga

Ingibjörg Erla Grétarsdóttir

Ingibjörgu Erlu Grétarsdóttur þarf vart að kynna fyrir þá sem fylgjast með Taekwondo bardaga á Íslandi. Hún keppir nú í -57 senior og hefur verið í algjörum sérflokki þar og er sá kvennkeppandi okkar sem hefur landað stærstu alþjóðlegu medalíunum. Má þar meðal annars nefna silfur á Serbian open sem var gríðarlega sterkt mót. Hún er einnig margfaldur Íslands- og Norðulandameistari og gífurlega glæsileg fyrirmynd fyrir alla sem koma að Taekwondo á Íslandi. Árið 2021 hefur verið viðburðaríkt hjá Ingibjörgu eftir að keppnir byrjuðu aftur erlendis. Hún hefur sótt fjölda móta og æfinga erlendis og bætingin verið heilmikil og árangurinn eftir því. Ingibjörg hefur verið að keppa á G-mótum sem eru sterkustu alþjóðlegu mótin og hefur núna í haust keppt á 5 slíkum. Það hefur verið mikill stígandi í árangri og tókst henni meðal annars að vinna konu frá Morokó sem er númer 12 á heimslistanum en er komin í 7. s´ætið núna þegar þetta er skrifað og er það sennilega einn stærsti sigur sem kvenkeppandi frá Íslandi hefur náð. Við hlökkum til með að fylgjast með áframhaldinu.
Afrek á árinu :
5. sæti Montenegro Open (sigraði keppanda númer 12/7 á heimslistanum)
8. sæti Albania Open
17. sæti French Open