TKÍ bikarmótið – Upplýsingar

By:

Fyrsta TKÍ Bikarmótið fyrir veturinn 2011/2012

Á laugardeginum 19 nóvember verður keppt í cadet flokki, (Sjá nánar hópaskiptingu:cadetHoparBikarmot12011).  Laugardagsmótið verður haldið í sal Aftureldingar í íþróttamiðstöðinni við Lágarfellslaug, Mosfellsbæ (sjá nánar kort: Staðsetning), Mótið hefst kl 9.00. Á laugardgi er keppt á tvemur gólfum  (einu Poomsae og einu sparring). Keppt verður í cadet  á laugardeginum og minior,junior, senior og superior á sunnudeginum þá verður mótið í sal Aftureldingar íþróttamiðstöðinni við varmá .

Á laugardag hefur verður leitast við að skipta hópunum í 4 manna hópa sem keppa í sparring en í poomsae keppa tveir hópar saman (8 iðkendur) . Í cadet flokki verða loturnar tvær og gullstig ef jafnt er.  loturnar eru 2 x 1.5 mín og það verður ekki keppt um 3 til 4 sætið.

Á sunnudeginum verður leitast við að fara eftir reglum WTF í flokka skiptingu og mótsfyrirkomulagi, svo framalega sem það er hægt, bæði í sparring og poomsae.

 

Skráningafrestur er á miðnætti Þriðjudaginn 15. nóvember. Senda skal skráningu á netfangið tki@tki.is

 

Til að ná góðu flæði í mótið og geta haldið tímamörk, þá er mjög mikilvægt að öll félög skrái iðkendur sýna á þar til gert skráningarform (bætið inn línum eftir þörfum). Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: Nafni iðkenda, kennitala, (aldur), beltagráða, hæð og þyngd. Einnig þarf að koma fram hvort viðkomandi ætlar að keppa í bæði poomsae og sparring eða bara í annari greininni. Allir keppendur 12 ára og eldri þurfa að hafa keppnisleyfi frá TKÍ (afhendist á mótsdag ef allar skráningar eru réttar  og viðkomandi félag er skuldlaust við TKÍ og  Felix rétt uppfærður).

 

Ýtarlegri lýsing á mótsfyrirkomulagi: TKÍ Bikarmót 1 af 3 2011 og tkiBikarmót

Þáttökugjöld á barnamótinu á laugardag eru 1500 kr og fyrir fullorðna á sunnudag er gjaldið 2500 kr

Greiða skal þátttökugjöldin inn Bankareikning 0114-15-380690 KT:120666-5179

Fyrir miðnætti Miðvikudaginn 16 nóvember.

 

Skráningarform: skraning1TkiBikarmot

Dregið var um þau form sem keppendur í fullorðins flokkum  eiga að keppa í á sunnudeginum.

9.-5. kup:
          1. Umferð: frjálst val um form frá (1) il jang – (7) Chil jang
                                              2. Umferð: frjálst val um form frá (1) il jang – (7) Chil jang

4.-.1. kup:
         1. Umferð: (6) Yook jang
                2. Umferð: (4) Sah Jang

1. dan+:
             1. Umferð: (8) Pal jang
                    2. Umerð: (10) Keumgang