TKÍ Bikarmót III

By:

Þriðja TKÍ Bikarmótið fyrir veturinn 2011/2012

Bikarmótið verður haldið í Íþróttamiðstöð Áramanns í Laugardal, Engjavegi 7, dagana 21. og 22. apríl næstkomandi. Mótið hefst kl 9.00. Yngsti hópurinn (börn yngri en 12 ára) keppir á laugardeginum á trem gólfum, einu poomsae og tvem sparring. Á sunnudeginum keppa allir sem eru 12 ára og eldri (cadet, junior, senior og superior) á tvem gólfum. Mótstjórn áskilur sér rétt til að breyta þessu fyrirkomulagi í samræmi við skráningar.

Mótsfyrirkomulag verður eins og verið hefur á bikarmótum.

Í yngri flokkunum á laugardag verður leitast við að skipta keppendum í 4 manna hópa sem keppa í sparring en í poomsae keppa tveir hópar saman (8 iðkendur) .

Á sunnudeginum verður leitast við að fara eftir reglum WTF í flokka skiptingu og mótsfyrirkomulagi, svo framarlega sem það er hægt, bæði í sparring og poomsae.

Skráningafrestur er á miðnætti föstudaginn 13. apríl kl 24:00. Senda skal skráningu á netfangið irunn@isb.is

 

Til að ná góðu flæði í mótið og geta haldið tímamörk, þá er mjög mikilvægt að öll félög skrái iðkendur sýna á þar til gert skráningarform (bætið inn línum eftir þörfum).

Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: Nafni iðkenda, kennitala, beltagráða, hæð og þyngd. Engin vigtun verður, en vigt verður á staðnum og áskilur mótstjórn sér rétt til að vigta einstaka keppendur, sé talin ástæða til eða að upp komi kvartanir.

Einnig þarf að koma fram hvort viðkomandi ætlar að keppa í bæði poomsae og sparring eða bara í annarri greininni. Allir keppendur 12 ára og eldri þurfa að hafa keppnisleyfi frá TKÍ (afhendist á mótsdag sé keppandi ekki þegar kominn með leyfi ef allar skráningar eru réttar  og viðkomandi félag er skuldlaust við TKÍ (fyrirn árið 2011) og  Felix rétt uppfærður). ATH. Þeir sem þegar hafa fengið TKÍ passa/keppnisleyfi, skylda er að koma með þá.

 

Ýtarlegri lýsing á mótsfyrirkomulagi verður sett inn á heimasíðu TKÍ þegar hún liggur endanlega fyrir.

Þáttökugjöld á barnamótinu á laugardag eru 1500 kr og fyrir fullorðna á sunnudag er gjaldið 2500 kr

Greiða skal þátttökugjöldin inn Bankareikning:  303 – 26 – 6305 KT: 630502 – 2840

Fyrir miðnætti föstudaginn 13. apríl.

 

Vakni upp einhverjar spurningar, vinsamlegast hafið samband við fulltrúa mótshaldara:

Írunn Ketilsdóttir, irunnisb.is

Skráningarform: skraningTkiBikarmot3