Tilnefningar um taekwondomann og taekwondokonu ársins 2018

By:

TKÍ óskar eftir tilnefningum frá félögum um taekwondomann og taekwondokonu ársins 2018. 

Skila þarf inn tilkynningum á netfangið tki@tki.is eigi síðar en kl. 12:00 fimmtudaginn 13. desember og skal tilnefning vera rökstudd með hliðsjón af árangri á mótum, innanlands sem utan, og annarra afreka á sviði íþróttarinnar. 

Stjórn TKÍ mun svo fara yfir tilnefningar og útnefna einn karl og eina konu sem taekwondofólk ársins, og munu þeir einstaklingar koma til greina í vali Íþróttamanns og Íþróttakonu ársins á vegum ÍSÍ og Samtaka Íþróttafréttamanna. 

Óskað er eftir tilnefningu á einni konu og einum karli frá hverju aðildarfélagi TKÍ.