Meisam Rafiei fékk styrk frá Ólympíusamhjálpinni vegna Ríó 2016

By:

Í dag var gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttamanna þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016. Um er að ræða styrki vegna átta íþróttamanna frá fimm sérsamböndum.

Heildarverðmæti samninga gæti numið allt að 28 m.kr. (miðað við gengi dagsins í dag) og skiptist í tvo þætti.

a) Mánaðarlegan styrk fyrir hvern styrkþega að upphæð 1.000 USD vegna kostnaðar við æfingar og keppnir viðkomandi íþróttamanns.
b) 5.000 USD styrk vegna keppnisferða hvers íþróttamanns.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kallaði eftir tillögum frá sérsamböndum ÍSÍ og bárust tillögur vegna 15 íþróttamanna. Allir þessir íþróttamenn hafa það á stefnu sinni að ná lágmörkum vegna Ólympíuleikanna í Ríó 2016 og hafa hafið stífan og kostnaðarfrekan undirbúning vegna þessa.

Að þessu sinni náðist að tryggja styrki vegna átta íþróttamanna, en sjö íþróttamenn voru á sambærilegum styrk vegna leikanna í London 2012 og fimm vegna Peking 2008. Styrktímabil hófst þann 1. september s.l. og stendur fram að leikum, nái styrkþegi að tryggja sér þátttökurétt.

Heildarkostnaðaráætlun styrkþega fram að leikum er margföld þeirri upphæð sem styrkir Ólympíusamhjálparinnar og ÍSÍ nema, en lauslega áætlað má reikna með að árlegur kostnaður á íþróttamann sé á bilinu 5 til 10 m.kr. eða um 60 m.kr. árlega vegna þessara íþróttamanna.

Í samanburði við þær tölur má nefna að framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2014 nam 70 m.kr. og er þeim fjármunum ráðstafað til 26 sérsambanda eða 41 einstaklinga og 62 verkefna/liða. Árleg ráðstöfnun sjóðsins á árinu 2014 nemur í heildina rúmlega 110 m.kr.

Íslenskt afreksíþróttafólk eru mjög mikilvægar fyrirmyndir fyrir íslenska æsku og þjóðfélagið í heild sinni. Á erlendri grundu er íslenskt íþróttafólk sendiherrar lands síns og eru með í að kynna landið fyrir öðrum þjóðum. Til framtíðar er mikilvægt að hlúa enn betur að þessu fólki með því að gefa því tækifæri á að taka þátt í verðugum verkefnum og styðja við bakið á því með fræðslu og faglegri þekkingu sem og auknu fjármagni.

Sérsambönd ÍSÍ og styrkþegar munu á næstu tveimur árum leggja mikið í að vinna sér keppnisrétt á leikana í Ríó, bæði fjármuni sem ferðalög og tíma. Er það von ÍSÍ að sem flestir nái því markmiði sínu að vinna sér inn þátttökurétt.

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ kynntu úthlutun ÍSÍ.

Styrkþegar Ólympíusamhjálparinnar vegna Ríó 2016 eru:
Aníta Hinriksdóttir / Frjálsíþróttasamband Íslands

Ásdís Hjálmsdóttir / Frjálsíþróttasamband Íslands

Ásgeir Sigurgeirsson / Skotíþróttasamband Íslands

Eygló Ósk Gústafsdóttir /Sundsamband Íslands

Guðmundur Sverrisson /Frjálsíþróttasamband Íslands

Hrafnhildur Lúthersdóttir / Sundsamband Íslands

Meisam Rafiei / Taekwondósamband Íslands

Þormóður Árni Jónsson / Júdósamband Íslands