Landsliðsúrtökur í bardaga – upplýsingar

By:

Stjórn TKÍ minnir á úrtökur fyrir landsliðið í bardaga sem haldnar verða 28. og 29. september næstkomandi.  Þann 28. september verður æfingin að Varmá í Mosfellsbæ á milli kl. 1830 og 2100, og þann 29. september í Keflavík á milli kl. 1830 og 2100.

Athugið að í vetur verður breytt fyrirkomulag á landsliðsstarfinu sem ætlað er að skerpa það og gera markvissara en verið hefur og eru helstu reglurnar taldar upp hér.  Einungis keppendur í landsliði eiga þess kost að keppa fyrir hönd Íslands á mótum erlendis, s.s. HM og EM og að freista þess að komast á ÓL.

Einungis þeir sem mæta í úrtökur eru gjaldgengir í landsliðið og hafa heimild til að mæta á landsliðsæfingar.

Þeir sem valdir eru í landsliðið skulu mæta á allar æfingar landsliðsins og taka fullan þátt í þeim, nema gildar ástæður séu fyrir fjarveru og þær ástæður tilgreindar sérstaklega fyrirfram til landsliðsþjálfara og TKÍ með skriflegum hætti.  Óútskýrð fjarvist á landsliðsæfingu þýðir að viðkomandi fellur úr landsliðinu.

Landsliðsfólk skal mæta á öll mót sem haldin eru á vegum TKÍ, ýmist sem keppendur, þjálfarar eða starfsfólk, nema gildar ástæður séu fyrir fjarveru og þær ástæður tilgreindar sérstaklega fyrirfram til landsliðsþjálfara og TKÍ með skriflegum hætti.  Óútskýrð fjarvist á móti á vegum TKÍ þýðir að viðkomandi fellur úr landsliðinu.

TKÍ mun skipuleggja vikulegar æfingar á hverjar landsliðsfólk verður að sýna tiltekna lágmarksmætingu til að halda sæti sínu í landsliðinu.

TKÍ beinir því svo sérstaklega til yfirþjálfara einstakra félaga að mæta á landsliðsæfingar með sínum iðkendum til að styðja við þá þjálfun sem þar á sér stað.  Val á keppendum í einstaka landsliðsverkefni getur oltið á hversu vel viðkomandi keppandi hefur sinnt sinni þjálfun skv. fyrirmælum landsliðsþjálfara á milli landsliðsæfinga og þar leikur yfirþjálfari hans stórt hlutverk.

Stjórn TKÍ