Landslið Íslands í bardaga

By:

Komið þið sæl, landsliðsþjálfari Íslands í bardaga hefur valið hópinn sem æfa mun undir hans stjórn nk. vetur.  Eftirtaldir aðilar komust í landsliðið eftir úrtökur í lok september:

Andri Sævar Arnarsson
Arnar Bragason
Ágúst Kristinn Eðvarðsson
Daníel Arnar Ragnarsson
Eyþór Jónsson
Kristmundur Gíslason
Aron Haraldsson
Benedikta Jónsdóttir
Daníel Sigtryggsson
Jón Steinar Mikaelsson
Ylfa Vár Jóhannsdóttir
Davíð Úlfur Vésteinsson
Jón Ágúst Jónsson
Ósk Óskarsdóttir
Árný Eyja Ólafsdóttir

Stjórn TKÍ og landsliðsþjálfari benda hins vegar á að þeir aðilar sem höfðu óskað eftir því að spreyta sig á úrtökum á næstu landsliðsæfingu, sökum verkefna með poomsae landsliði Íslands, gætu bæst við þennan hóp, eftir því hvernig þeim gengur á úrtökunum, og þarf því ekki að vera  um endanlegan lista að ræða.

Við óskum þessum iðkendum til hamingju með árangurinn og erum stolt af þessum hópi.  Næsta skref er að setja upp lokaða vefsíðu fyrir þennan hóp til að ræða málefni landsliðsins og munu iðkendur og aðstandendur þeirra iðkenda sem ekki hafa náð 18 ára aldri fá aðgang að slíkri síðu.

 

TKÍ