Dómaranámskeið í poomsae

By:

Það er okkur ánægja að tilkynna um dómaranámskeið í poomsae sem haldið verður í Ármanni laugardaginn 27. október. Edina Lents mun sjá um kennsluna og er hún einkar virt innan dómaraheimsins og situr m.a. í WT Poomsae Committee.

Námskeiðið hefst stundvíslega kl. 09:00 og stendur til 12:00, og er þátttakendum að kostnaðarlausu, en óskað er eftir að fólk tilkynni um þátttöku til tki@tki.is.