Ársþing TKÍ 10 maí 2012

By:

 

Ársþing TKÍ 2012 ( arsthing2012)

 

Kæru taekwondo iðkendur og velunnarar.

 

Ársþing Taekwondosambands Íslands verður haldið í húsnæði ÍSÍ, við Engjaveg í Laugardal,

fimmtudaginn 10. maí 2012 kl. 20:00.

 

Dagskrá

1. Þingsetning.

2. Kosning 1. og 2. þingforseta.

3. Kosning 1. og 2. þingritara.

4. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.

5. Ávörp gesta.

6. Álit kjörbréfanefndar.

7. Skýrsla stjórnar lögð fram.

8. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.

9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

10. Kosning þingnefnda.

11. Þingnefndir starfa.

12. Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.

13. Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað

við skráða iðendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.

14. Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu,

15. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.

16. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu.

17. Kosningar:

– stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein

– 2 skoðunarmenn reikninga.

– fastanefndir sem starfa milli taekwondoþinga.

– fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.

18. Þingslit.

 

 

Það ber að taka fram hvernig skal farið að við meðferð atkvæða og umboða:

7. grein

Á Taekwondoþingi hafa kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt, en rétt til setu á þinginu með málfrelsi og

tillögurétt hafa:

a) Stjórn TKÍ

b) Heiðursformaður og heiðursfélagar

c) Framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri ÍSÍ

d) Fastráðnir starfsmenn TKÍ

e) Fulltrúar í fastanefndum TKÍ

Auk þess getur stjórnin boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til.

Allir fulltrúar skulu vera tilgreindir á kjörbréfi frá viðkomandi sambandsaðila og skal skila kjörbréfum

inn til stjórnar TKÍ eigi síðar en viku fyrir þing. Hver fulltrúi fer með eitt atkvæði en getur auk þess

farið með annað atkvæði, samkvæmt skriflegu umboði þess sambandsaðila sem hann er fulltrúi fyrir.

Við afgreiðslu almennra mála og í kosningum, ræður einfaldur meirihluti atkvæða, en til lagabreytinga þarf 2/3 hluta atkvæða.

Farið verður eftir reglum þessum varðandi meðferð atkvæða og kjörbréf sem berast seinna en viku fyrir þing, þ.e. eftir kl. 20 þann 3. maí eru ógild.

 

Einnig ber að minna á grein 12 úr lögum TKÍ:

12. grein
Ársskýrslur og ársreikningar sambandsaðila TKÍ skulu berast á tölvutæku formi til TKÍ fyrir 15. apríl ár hvert.

Eftirfarandi tillaga að lagabreytingu verður lögð fyrir þingið, sem varðar Grein 7:

Var:

7. grein

Á Taekwondoþingi hafa kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt, en rétt til setu á þinginu með málfrelsi og

tillögurétt hafa:

a) Stjórn TKÍ

b) Heiðursformaður og heiðursfélagar

c) Framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri ÍSÍ

d) Fastráðnir starfsmenn TKÍ

e) Fulltrúar í fastanefndum TKÍ

Auk þess getur stjórnin boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til.

Allir fulltrúar skulu vera tilgreindir á kjörbréfi frá viðkomandi sambandsaðila og skal skila kjörbréfum

inn til stjórnar TKÍ eigi síðar en viku fyrir þing. Hver fulltrúi fer með eitt atkvæði en getur auk þess

farið með annað atkvæði, samkvæmt skriflegu umboði þess sambandsaðila sem hann er fulltrúi fyrir.

Við afgreiðslu almennra mála og í kosningum, ræður einfaldur meirihluti atkvæða, en til lagabreytinga þarf 2/3 hluta atkvæða.

Tillaga að breytingu:

7. grein

Á Taekwondoþingi hafa kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt, en rétt til setu á þinginu með málfrelsi og

tillögurétt hafa:

a) Stjórn TKÍ

b) Heiðursformaður og heiðursfélagar

c) Framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri ÍSÍ

d) Fastráðnir starfsmenn TKÍ

e) Fulltrúar í fastanefndum TKÍ

Auk þess getur stjórnin boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til.

Allir fulltrúar skulu vera tilgreindir á kjörbréfi frá viðkomandi sambandsaðila og skal skila kjörbréfum

inn til stjórnar TKÍ eigi síðar en viku fyrir þing. Hver fulltrúi fer með eitt atkvæði.

Við afgreiðslu almennra mála og í kosningum, ræður einfaldur meirihluti atkvæða, en til lagabreytinga þarf 2/3 hluta atkvæða.

 

Bestu kveðjur.

Stjórn TKÍ