TKÍ óskar eftir tilnefningum í mótanefnd

By:

 

Stjórn TKÍ hefur ákveðið að óska eftir tilnefningum í mótanefnd, og óskum því eftir að hvert félag tilnefni einn aðila í nefndina.  Stjórn TKÍ mun tilnefna formann nefndarinnar.

Hlutverk mótanefndar verður að skipuleggja og fá aðila til þess að halda mót á vegum TKÍ, ásamt því að styðja við mótshaldara af dyggð og dáð.  Þar með talin eru Bikarmótin þrjú, Íslandsmeistaramótin tvö og Reykjavík International Games, en einnig verður það hlutverk nefndarinnar að styðja við annað mótastarf á vegum aðildarfélaga eftir því sem unnt er.

Mótanefndin skal leita samþykkis stjórnar TKÍ varðandi fjárútlát, ef kemur til álitamála, og í stórum málum svo sem hvar, hvenær og af hverjum mót skuli haldin.

TKÍ mun óska eftir félögum til að hýsa mótin í lok sumars hvert ár.

Fyrsta verk mótanefndar verður að styðja við Taekwondodeild Keflavíkur sem mun halda Bikarmót III, en það mót er rétt handan við hornið (22. – 23. apríl).

Undir mótanefnd mun einnig falla umsjón með að mótabúnaður sé í lagi ásamt endurnýjun hans í samráði við stjórn TKÍ.  Einnig að skipuleggja mönnun móta ásamt því félagi sem heldur mótið.  Að setja upp bardagatré og ákveða flokkaskiptingar verður í höndum mótanefndar.

Mótanefnd verður skipuð til tveggja ára í senn.  Ný mótanefnd tekur til starfa að loknu síðasta móts hvers vetrar.  Fráfarandi mótanefnd ber ábyrgð á að ný mótanefnd fái allan þann stuðning er þarf til þess að skiptingin gangi snurðulaust.