Síðara fundarboð á ársþing TKÍ 2016

By:

Komið þið sæl, í samræmi við 6. gr. laga TKÍ er hér með boðað til ársþings TKÍ þann 17. mars 2016 með síðara fundarboði.  Þingið verður haldið á milli kl. 18 og 20 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, í sal D.

Fundarboð þetta er sent til héraðssambanda og íþróttabandalanga eins og kveðið er á um í lögum sambandsins, en þar að auki er það birt á heimasíðu sambandsins og á Facebook síðu þess.

Kosið verður um embætti formanns TKÍ sbr. 10. gr. laga sambandsins; og mun núverandi formaður, Haukur Skúlason, ekki gefa kost á sér áfram.  Ennfremur verður kosið um embætti tveggja meðstjórnenda til tveggja ára og um embætti eins meðstjórnanda til eins árs.

Meðfylgjandi eru tillögur að lagabreytingum sem lagðar verða fyrir þingið til samþykktar.

Kjörbréf verða send til viðkomandi héraðssambanda og geta félög nálgast þau þar fyrir ársþingið.

Dagskrá fundarins er sem hér segir, sbr. 8. gr. laga TKÍ.

  1. Þingsetning.
  2. Kosning 1. og 2. þingforseta.
  3. Kosning 1. og 2. þingritara.
  4. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.
  5. Ávörp gesta.
  6. Álit kjörbréfanefndar.
  7. Skýrsla stjórnar lögð fram.
  8. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
  9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
  10. Kosning þingnefnda.
  11. Þingnefndir starfa.
  12. Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
  13. Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.
  14. Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu,
  15. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.
  16. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir.
  17. Kosningar:

– stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein

– 2 skoðunarmenn reikninga.

– fastanefndir sem starfa milli taekwondoþinga.

– fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.

  1. Þingslit.

Kveðja,

Haukur Skúlason

Formaður Taekwondosambands Íslands

 

Drög að lagabreytingum TKÍ lögð fyrir ársþing TKÍ 2016