U&E Æfingar – Poomsae: Dagskrá!

By:

Næstu æfingar hjá ungum og efnilegum í poomsae verða haldnar laugardaginn 17. mars. Þar sem árshátíð TKÍ er um kvöldið munu æfingar einungis vera á laugardeginum. Við munum byrja snemma og æfa nokkrum sinnum yfir daginn.

Nánari upplýsingar og dagskrá koma síðar.

Fyrir síðustu æfingahelgi voru of margir sem ekki tilkynntu forföll. Lágmarksmæting á æfingabúðir U&E er 50%. Iðkandi sem ekki mætir á tvær æfingahelgar í röð án þess að gefnar séu gildar ástæður fyrir fjarveru glatar plássi sínu í liðinu.

Forráðamenn eru beðnir um að tilkynna mætingu eða forföll á netfangið taeknilandslid@gmail.com.

Dagskrá dagsins er eftirfarandi:

10:30-12:00 Æfing

12:00-12:20 Stutt hlé

12:20-13:20 Æfing

13:20-14:00 Hádegismatur

14:00-15:15 Æfing

Aðstaða verður í húsinu til að borða nesti í hádeginu.

Æft verður í kjallarasal ÍR í Skógarseli.