27. Landsmót UMFÍ á Selfossi 4.-7. júlí

By:

27. Landsmót UMFÍ á Selfossi 4.-7. júlí

Fyrstu helgina í júlí verður 27. Landsmót UMFÍ haldið á Selfossi. Undirbúningur vegna mótsins hefur staðið yfir í langan tíma og stefnir Héraðssambandið Skarphéðinn á að halda glæsilegt mót. Mikil og metnaðarfull uppbygging íþróttamannvirkja hefur orðið á Selfossi á undanförnum árum og er óhætt að segja að sú aðstaða sem verður í boði fyrir keppendur á þessu móti sé ein sú besta á landinu. Sveitarfélagið Árborg hefur unnið ötullega að þessari uppbyggingu og lagt sitt á vogarskálarnar til að gera mótið sem glæsilegast.

Landsmótin hafa í gegnum tíðina verið glæsilegar íþróttahátíðir og keppnisgreinar margar, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Á síðasta Landsmóti, sem haldið var 2009, voru keppendur um tvö þúsund og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda á Selfossi í ár. Mótunum fylgir jafnan sérstök stemning, en þar hittast ungir sem aldnir og taka þátt í keppni mótsins, rifja upp gamlar og góðar minningar úr starfinu og af fyrri Landsmótum. Alls verða keppnisgreinar á Landsmótinu á Selfossi 25 talsins. Keppt er í einum aldursflokki í karla- og kvennagreinum.

Landsmótið hefst fimmtudaginn 4. júlí með keppni í nokkrum íþróttagreinum. Íþróttakeppnin, sem er uppistaða mótsins, heldur síðan áfram á föstudegi, en aðalþungi keppninnar verður á laugardag og sunnudag. Mótssetning verður á Selfossvelli föstudagskvöldið 5. júlí og hefst kl. 21. Mótsslit verða upp úr miðjum sunnudegi. Ýmsir áhugaverðir viðburðir fyrir utan sjálfa íþróttakeppnina verða á Selfossi þessa daga, fyrir börn og fullorðna. Það er því tilvalið að heimsækja Selfoss 4.–7. júlí og upplifa þessa stemningu. Bærinn mun iða af lífi frá morgni til kvölds og skarta sínu feg

Nánar um Taekwondo mótð: L2013 Taekwondo